sunnudagur, nóvember 05, 2006

Gleði, me is back.

Jæja... Ég er þá loksins kominn aftur. Sjálfsagt verða margir fegnir því. Hvað er ég búinn að vera að gera? Góð spurning. Frá síðasta bloggi er ég búinn að flytja tvisvar, vinna í Bónus og á Broadway, byrja í hljómsveit, hætta í bónus, byrja í Brú (veitingaskálanum í hrútafirði), hætta í Brú, vera atvinnulaus, klessa bílinn minn, spila á tónleikum, byrja í Esso og... já. held að það sé þá upptalið. Frábært, er það ekki?
Annars, já. Hljómsveitin sem ég er í heitir Lister og er ég sönvari. Það er hægt að skoða hana aðeins á myspace síðu hér: http://myspace.com/listericeland og hlusta á tvö demo sem við tókum upp. Ekkert frábærar upptökur á ferðinni en gefur þó hugmynd um hvernig við erum. Hm.. Tónleikarnir voru svona upp og ofan. Vorum ýmist frábærir eða hörmulegir, allt eftir því hver er spurður. Gleymdi reyndar textanum í lokalaginu en það gerist þá bara ekki aftur. Einn rótarinn var heldur ekki að standa sig, rétti vitlausa gítara og svona þannig að bassaleikarinn fékk að skína pínu á milli laga. Ekkert nema gott um það að segja. Síðan stefnum við náttúrulega á heimsyfirráð. Dugar ekkert minna. En held að þetta sé nóg í bili. Meira seinna.

P.s. Ég hata ennþá pop-up.

fimmtudagur, febrúar 09, 2006

Yfirnáttúrulega ekkert.

Hvað er að gerast? Ekkert. ég er búinn að vera hérna í mánuð og ekki búinn að gera handtak liggur við. ekki nógu gott, sko.
En allavegana þá var ég að vinna um síðustu helgi (reyndar bara laugardagskvöld) sem þjónn á broadway, þar sem að mér tókst að brenna mig. Fékk blöðru og alles. Heitir matardiskar.
Og svo á ég að vinna aftur um þessa helgi (aftur laugardagskvöld). Jei.
Annars er ekki frá mörgu að segja... einhver dentaði bílinn minn aðeins,
fór með hann á verkstæði,
fékk bílaleigubíl,
keyri.

sunnudagur, janúar 29, 2006

Hmpf...

Jæja...
Ákvað loksins að blogga aftur. Það er ekki það að ég gleymdi því eða vildi það ekki, ég bara einfaldlega nennti því ekki. En núna er einhver dugur í mér og ég ákvað að láta verða af því.
Allavegana, síðan síðast (sem er aperentlý svolítið langt síðan) þá hef ég ekki bara látið klippa mig, rakað mig, skipt um föt og farið í sturtu heldur er ég fluttur frá minni ástkæru Akureyri.
Það er rétt. Ég er fluttur í borg ótta og synda. Reykjavík.
Ekki að það sé svo slæmt, fann fínan stað og læti. Hef allt til alls og svoleiðis. Verst finnst mér stærðin á herberginu. Er nákvæmlega enga stund að fylla það af drasli. Á móti kemur að ég er heldur enga stund að taka til í því. Hendi bara draslinu í eitt stykki hagkaupspoka eða eitthvað álíka og sjá: herbergið er orðið hreint.
Hef bara enn ekki komið mér í það að fá mér vinnu. Er einnig ótrúlega lélegur í því að hafa samband við alla ættingjana hérna.
En allavegana, nú hef ég bloggað aftur og mun áreiðanlega gera það aftur áður en allt of langur tími er liðinn, kannski.

fimmtudagur, nóvember 03, 2005

Ussussuss

Ég hef víst ekkert verið neitt frábærlega duglegur að blogga hérna, en það er allt í lagi. Ég tel nefnilega nokkuð öruggt að það séu ekki margir sem lesi þetta, ef einhverjir geri það þá. Ég hef nefnilega ekkert verið mikið að auglýsa þetta blogg mitt enda engin sérstök ástæða til. Ef fólk vill vita hver slóðin er þá getur það bara spurt mig.
Píss.

sunnudagur, júní 12, 2005

Hóbó meil

Er ekki búinn að vera að skrifa mikið upp á síðkastið, enda búinn að vera á fullu að vinna (já... ég vinn, hvaða hel****) og gera aðra skemmtilega hluti. Var til dæmis í borg óttans í síðustu viku á Iron Maiden tónleikum. Þvílíkt rosalegt sjó. Þetta var geðveikt. En varð fyrir smá vonbrigðum með stemninguna. Hún hefði áreiðanlega getað verið betri. En ég var fyrir mitt leyti tiltölulega sáttur.
Og svo núna um helgina var ég í óvissuferð með Rígs-liði. Það var rosalegt. Voðalega var þetta gaman. Fórum á Ídali og gistum þar í tjöldum. Síðan daginn eftir var farið í ratleik í Dimmuborgum. Náði að sólbrenna svona æðislega rosalega á hnakkanum og í andliti við það. En gaman að segja frá því að Þorleifur (leikstjóri Rígsins) birtist allt í einu, öllum að óvörum (nema náttúrulega skipuleggjendum ferðarinnar, sem höfðu að sjálfsögðu skipulagt þetta) og kom þá í ljós að hann hafði útbúið ratleikinn. Síðan eftir leikinn fórum við og fengum ís. Gistum síðan í bóndabæ sem okkar ástkæra Fanney hafði einhverntíma átt heima í. Takk fyrir pent (svaf í herbergi með málverki af strák sem starði á mig meðan ég svaf. Þokkalegt, takk fyrir).

Síðan á morgun þarf ég einu sinni enn að fara að vinna, in the middle of nowhere. Frábært. Æðislegt. Frábærlega æðislegt. Get ekki beðið. Mig langar ekkert að fara að vinna. Áreiðanlega leti, en samt. Ég hef ekki getað verið í rólegu og afslöppuðu fríi í tvær vikur eða svo. Mig langar í frí þar sem ég þarf ekki að gera neitt.

Og svona í endann... Það hefur ekki komið pop-up í langan tíma og ég er svo glaður. Vonandi munu allir upplifa þessa hamingju þegar pop-ups hefur verið útrýmt og skaparar þeirra húð-strýktir.

miðvikudagur, maí 25, 2005

Ég nenni ekki...

oh.. ég er ekki að nenna að fara að sofa...
Hvað á maður að gera þegar maður þarf að vakna kl. 8-8.30 vegna þess að maður þarf að drattast niður á rútu til að ná í vinnuna á skikkanlegum tíma, en nennir alls ekki að fara að sofa? Nú, þá er ekkert annað að gera en hanga í tölvunni og horfa á þætti af "Spaced". Það eru snilldarþættir frá bretlandi (en þaðan koma allir langbestu gamanþættirnir að mínu mati) sem gaman er að horfa á. Annars þá hef ég það fyrir sið að finna mér nóg að gera þegar ég á að vera að gera eitthvað annað. Þá koma allar hugmyndirnar.
En já... best að vera ekkert að hafa þetta lengra í kvöld (eða nótt, vottever).

sunnudagur, maí 08, 2005

Loksins... nýtt blogg...

Halló, þið þarna úti.
Ég hef ekki sett neitt nýtt inn í langan tíma og ástæðan er sú, að lengi vel þá komst ég ekki á netið (án efa þessum blessuðu pop-up's og þess lags óbjóð að þakka) og þegar ég loksins komst á netið þá hafði ég gleymt lykilorðinu að þessari síðu minni. Þessari blessuðu blogg-síðu. Og vegna þess að ég er alltaf að reyna að vera maður með mönnum þá neitaði ég lengi vel að breyta lykilorðinu (því maður fær ekki að sjá sitt gamla lykilorð, nei, þú skalt sko velja þér nýtt!!!) en nú hef ég loksins látið verða af því og kem nú fullur reiði og biturleika aftur á netið.
Takk fyrir.

P.s. Núna þegar þetta er sett inn er klukkan u.þ.b. korter í sjö á sunnudags-morgni, svo þú skalt gjöra svo vel og sætta þig við það, að það geta vel verið einhverjar stafsetningarvillur á þessari innsettningu.